Írskir dagar
Mín dagskrábookmark
Góðgerðarkvöld Kára

Góðgerðarkvöld Kára

calendar_todayFimmtudagur, 2. júlí · 18:00–00:00location_onLopapeysusvæði

Stórbætt dagskrá því snillingarnir af skaganum Arnþór og Bjarki ætla að keyra stemninguna í botn enda frægir fyrir frábært stuð sem enginn vill missa af!

Við byrjum samt daginn á Happy Hour með okkar allra besta Dj Marra þar sem við verðum með gott verð á drykkjum og ennþá betra verð á treyjum, en við munum kynna nýjar treyjur sem verða þær heitustu á svæðinu!

Danni Heimis verður með legendary PubQuiz þar sem frábærir vinningar verða í boði!

Við verðum með uppboð á treyjum frá okkar allra bestu Akranes landsliðsmönnum, Hákoni Haralds, Ísaki Bergmann og Stefáni Teit ásamt því að geggjuð special edition Bubba treyja verður til uppboðs árituð af kónginum sjálfum.

Eins og síðustu ár mun okkar allrar besti og árlegi Hróðmar Halldórs sjá til þess að allir í tjaldinu munu syngja sig hása til miðnættis!

Algjör negla fyrir Írsku dagana framundan!

Gleymdi ég að segj að það er FRÍTT INN!?

Mæting er miði að geggjuðum Írskum dögum!

Alvöru Skaga-line-up sem þú vilt ekki missa af!