
Plötumarkaður Óla Palla ásamt Dóru og Döðlunum
Þann 4.júlí, á laugardegi Írskra daga verður plötumarkaður í garðinum hans Óla Palla á Skólabraut 33 frá 13:00-17:00. Gamlar sem nýjar plötur verða til sölu og sýnis, og eru allir svo sannarlega velkomnir. Stelpu-rokk/popp-hljómsveitin Dóra & Döðlurnar, sem fóru nýlega í tónleikaferðalag hringinn í kringum landið, munu stíga á stokk klukkan 13:00, svo gestir geta notið skemmtilegra tóna á meðan gluggað er ofan í kassa af vínylgersemum