
Slitnir strengir
Slitnir Strengir telja í Írska daga með tónleikum á hafnarsvæðinu á Akranesi þann 30. júní. Efnisskráin samanstendur af keltneskum þjóðlögum þar sem hressandi jiggar og rælar blandast við fallegar söngballöður sem láta engan ósnortinn.
Tónleikarnir eru kjörið tækifæri til að fara í kvöldstundarferðalag til Írlands og koma sér í stuð fyrir Írska daga.
Húsið opnar 19:15 og Slitnir Strengir stíga á svið kl 20:00.
Miðasala á tix.is